Markaður Kvenfélags Svalbarðsstrandar

Kvenfélagið verður í jólaskapi á markaði sem haldinn verður í Valsárskóla á Svalbarðseyri laugardaginn 23. nóvember 2024, frá kl. 12 til 16. 

Eins og hefð er fyrir verður á markaðinum handverk, matvara og ýmislegt annað, notað og nýtt.

Kaffihúsastemning í skálanum þar sem félagið verður með kaffi, kakó og vöfflur til sölu.

Athugið að enginn posi verður á staðnum, en hægt verður að leggja inn á reikning eða greiða með peningum.

Viðburður Kvenfélagsins á Facebook.