Fundarboð 146. fundur 10.02.25

Fundarboð

146. fundur sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps 2022-2026 verður haldinn í ráðhúsinu Svalbarðseyri, mánudaginn 10. febrúar 2025 14:00.

 

Dagskrá:

Almenn mál

1.

2502003 - Vaðlaborgir A L198869 - deiliskipulagsbreyting

 

Erindi frá Landslagi ehf. fh. Árvegs ehf. landeiganda að Vaðlaborgum A L198869 þar sem óskað er eftir óverulegri breytingu á deiliskipulagi. Breytingin felst í auknu byggingarmagni á lóðum nr. 8,9,10,11 og 12, þar sem hámarksstærð húsa er aukið úr 85m² í 130m² A-rýma og allt að 50m² B-rýma, eins og fram kemur í meðfylgjandi erindi dags. 5.febrúar 2025.

 

   

2.

2501006 - Umsagnarbeiðni vegna umsóknar frá Hótel natur

 

Erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, umsagnarbeiðni vegna umsóknar á breytingu á gildu rekstrarleyfi 2022-020645 frá Hótel natur Akureyri ehf vegna Þórisstaðir 4, þar sem verið er að fjölga gistirými upp í 100 gesti.

 

   

3.

2502001 - Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfi gistingar í Geldingsá lóð nr. 9

 

Erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, umsagnarbeiðni vegna umsóknar um rekstrarleyfi gistingar í flokki II frá ABC ehf vegna Geldingsár lóð nr. 9

 

   

4.

2105001 - Svæðisskipulag Eyjafjarðar

 

Erindi frá svæðisskipulagsnefnd, framtíðarfyrirkomulag skipulags- og byggingarmála, dags. 28. jan. 2025.

 

   

5.

2311008 - Erindi frá Kvennaathvarfi.

 

Erindi frá Kvennaathvarfinu, styrkbeiðni, dags. 31 jan 2025.

 

   

6.

2502002 - Styrkbeiðni, fræðsla fyrir foreldra um slysavarnir barna.

 

Erindi frá Miðstöð slysavarna barna, styrkbeiðni, fyrir fjármögnun fræðslu myndbands fyrir foreldra um slysavarnir ungra barna á heimilum og öryggi þeirra í bílum í samvinnu við heilsugæsluna.

 

   

7.

2311008 - Erindi frá SSNE

 

Erindi frá SSNE, fyrir hönd ungmenna sem tóku þátt í Ungmennaþingi SSNE í október 2024, erindi þeirra varðar umferðaröryggi í Svalbarðsstrandarhreppi.

 

   

8.

2306011 - Húsnæðismál skóla í Svalbarðsstrandarheppi

 

Þröstur Sigurðsson frá Opus verkfræðistofu mætir á fundinn.

 

   

Fundargerðir til kynningar

9.

2105001 - Svæðisskipulag Eyjafjarðar 2012-2024 Fundargerðir

 

Fundargerð svæðisskipulagsnefndar Eyjafjarðar, dags 21.janúar 2025 lögð fram til kynningar.

 

   

10.

2203006 - Fundargerðir embættis skipulags- og byggingarfulltrúa

 

Fundargerð embættis skipulags- og byggingarfulltrúa nr.86 lögð fram til kynningar.

 

   

11.

2201013 - Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga árið 2022

 

Fundargerðir stjórnar sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 960,961 og 962 lagðar fram til kynningar.