Skipulags- og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar auglýsir stöðu á skrifstofu embættisins til umsóknar.
Verkefnastjóri byggingarmála
Skipulags- og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar (SBE) auglýsir eftir aðila í 100 % stöðu verkefnastjóra byggingarmála. Starfið felst í leyfisveitingum og lögbundnu byggingareftirlit sveitarfélags eins og það er fyrirskrifað í 8. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010. Starfsmaðurinn mun bera ábyrgð á úrvinnslu erinda sem til afgreiðslu koma hjá SBE, svo sem yfirferð uppdrátta, útgáfu byggingarleyfa, samskiptum við umsækjendur og fagaðila, framkvæmd reglulegs byggingareftirlits, framkvæmd öryggis- og lokaúttekta auk annarra verkefna á sviði byggingarmála. Auk þess mun starfsmaðurinn hafa aðkomu að innleiðingu rafrænnar stjórnsýslu og annarra tækninýjunga á sviði byggingareftirlits. Um er að ræða nýja stöðu og leitað er að öflugum og hæfum einstaklingi sem hefur metnað til að vaxa og eflast í starfi og áhuga á að setja mark sitt á viðfangsefni sín. Starfstöð er á skrifstofu SBE, Skólatröð 9 í Hrafnagilshverfi.
Meðal verkefna starfsmannsins verða:
· Útgáfa byggingarleyfa og annarra leyfisbréfa vegna leyfisveitinga skv. mannvirkjalögum nr. 160/2010.
· Útgáfa lokavottorða og annarra vottorða skv. mannvirkjalögum nr. 160/2010.
· Skráning byggingarleyfa í Mannvirkjaskrá HMS.
· Yfirferð uppdrátta.
· Framkvæmd byggingareftirlits.
· Þáttaka í innleiðingu rafrænnar stjórnsýslu á sviði byggingarmála.
· Aðstoð við þróun byggingareftirlits og innleiðingu tækninýjunga.
· Þáttaka í samstarfsverkefnum milli sveitarfélaga á sviði byggingarmála.
· Upplýsingagjöf, leiðbeiningar og aðstoð á sviði byggingarmála við borgara og framkvæmdaraðila og aðra hagsmunaaðila.
· Þáttaka í innra eftirliti skv. gæðakerfi embættisins.
· Undirbúningur og eftirfylgni afgreiðslufunda skipulags- og byggingarfulltrúa.
Hæfni- og menntunarkröfur
· Byggingarfræðingur, -tæknifræðingur, -verkfræðingur eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
· Góð íslenskukunnátta bæði í ræðu og riti.
· Lipurð í samskiptum.
· Skipulagsfærni, nákvæmni og hæfileiki til að vinna sjálfstætt.
· Stundvísi og skipulögð vinnubrögð.
· Geta og vilji til að tileinka sér nýjungar.
· Samvinnuhæfni og jákvæðni í samskiptum.
· Reynsla af hönnun er kostur.
· Reynsla af vinnu samkvæmt gæðakerfi er kostur.
· Reynsla af Mannvirkjaskrá eða sambærilegum gagnagrunnum er kostur.
· Þekking á algengum hugbúnaði á borð við MS Office, CAD, BIM og GIS hugbúnaði er kostur.
Byggðasamlagið Skipulags- og byggingarfulltrúi Eyjafjarðar bs. var stofnað árið 2017 og annast það skipulags- og byggingarmál í Grýtubakkahreppi, Svalbarðsstrandarhreppi, Eyjafjarðarsveit og Hörgársveit skv. skipulagslögum nr. 123/2010 og mannvirkjalögum nr. 160/2012. Starfstöð byggðasamlagsins er í Skólatröð 9, Hrafnagilshverfi og þar vinna fjórir starfsmenn.
Umsóknarbréf og ferilskrá í pdf-sniði skulu send í tölvupósti í síðasta lagi 30. janúar 2026 á netfangið arnar@sbe.is
Nánari upplýsingar veitir Arnar Ólafsson, skipulags- og byggingarfulltrúi, í síma 463-0620.

Svalbarðsstrandarhreppur - Ráðhúsinu Svalbarðseyri, 606 Akureyri
Kennitala: 640269-2279 - Bankareikn.: 0162-26-075801