Fundarboð 56. fundur 19.10.2020

Fundarboð

 

56. fundur sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps 2018-2022 verður haldinn í ráðhúsinu Svalbarðseyri, 19. október 2020 kl. 15:00.

 

Dagskrá:

Almenn mál

1.

2009009 - Svalbarðseyri Deiliskipulag ÍB 2

 

Deiliskipulag fyrir Svalbarðseyri Deiliskipulag ÍB 2 lagt fram

     

2.

1407157 - Fjallsgirðing

 

Erindi dags. 30.09.2020 frá Stefáni Tryggva- og Sigríðarsyni varðandi eignarhald fjallsgirðingar, heimild sveitarstjórnar til lagningar fjallsgirðingar, verkefni sveitarfélagsins og verkefni brýnna samfélagslegra hagsmuna og upplýsinga- og samráðsskyldu sveitarfélagsins.

     

3.

2004007 - Samþykktir sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps

 

Samþykktir Svalbarðsstrandarhrepps lagðar fram til samþykktar

     

4.

2010004 - Tímabundnir íþrótta- og tómstundastyrkir fyrir börn á tekjulágum heimilum skólaárið 2020-2021

 

Félagsmálaráðuneyti felur sveitarfélögum að vera milliliður í greiðslum íþrótta- og tómstundastyrkja fyrir börn á tekjulágum heimilum skólaárið 2020/2021

     

5.

2001007 - Almannavarnarnefnd

 

Fundir Almannavarnarnefndar með viðbragðsaðilum.

     

6.

1407132 - Stofnun ungmennaráða í sveitarfélögum

 

Samþykktir um hlutverk ungmennaráðs lagðar fram til samþykktar

     

7.

1902015 - Stöðuleyfi vegna lausafjármuna

 

Sótt um stöðuleyfi fyrir 20´gám við norður hlið reykjúss í landi Mógils.

     

8.

1407285 - Sala/Leiga á íbúðum við Laugartún

 

Íbúð á neðri hæð Laugartúni 5 (FF2338905) er í eigu Svalbarðsstrandarhrepps. Sveitarstjórn hyggur á frekari byggingu íbúða í Valsárhverfi og í því samhengi er rætt um sölu eða áframhaldandi leigu fasteignar í Laugartún 5

     

9.

2010007 - Beiðni um niðurfellingu á fasteignagjöldum

 

Bréf frá Samtökum ferðþjónustunnar og fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu lagt fram. Aðilar óska að sveitarfélög krefjist lagasetningar vegna niðurfellingar eða frestun á fasteignagjöldum til fyrirtækja í ferðaþjónustu vegna þeirra áhrifa sem heimsfaraldur og sóttvarnaraðgerðir stjórnvalda eru að hafa á rekstur fyrirtækja innan ferðaþjónustu.

     

10.

2008009 - Fjárhagsáætlun 2021 og þriggja ára áætlun

 

Fjárhagsáætlun 2021 og þriggja ára áætlun. Lögð fram tekjuáætlun og tillögur að gjaldskrám.

     

Fundargerðir til kynningar

11.

2002002 - Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga 2020

 

Fundargerð samstarfsnefndar Sambands ísl. sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands v Félags leikskólakennara lögð fram til kynningar

     

 

 

Aðalmenn eru beðnir að láta vita af forföllum í tíma svo hægt sé að boða varamenn.

 

Svalbarðseyri 15.10.2020,

Gestur Jensson
Oddviti.