Fundarboð
Dagskrá:
Almenn mál |
||
1. |
1806009 - Ráðning sveitarstjóra |
|
Umsóknarfrestur til að sækja um stöðu sveitarstjóra rann út 19. júní síðastliðinn. Farið verður yfir hver næstu skref verða í ráðningarferlinu. |
||
2. |
2206008 - Geldingsá - viðbygging 2022 |
|
Jóhannes Arason Fossdal óskar eftir leyfi til að byggja skemmu þar sem áður stóð fjárhús. |
||
3. |
1901003 - Aðalskipulag 2020- |
|
Árni Ólafsson kemur á fundinn til að fara yfir verkstöðu nýs aðalskipulags Svalbarðsstrandarhrepps. |
||
7. |
2206001 - Erindi til sveitarstjórnar sem varða hjólabraut og Æskuvöllinn |
|
Farið yfir tillögur Æskunnar um úrbætur og lagfæringar á Æskuvelli og hjólabraut sem kynntar voru sveitarstjórn. Formaður Æskunnar Þóra Sigríður Torfadóttir og umsjónarmaður fasteigna Tómas Ingi Jónsson koma og fara yfir tillögurnar með sveitarstjórn. |
||
9. |
2206007 - Erindi til sveitarstjórnar vegna stefnumótunar í þremur málaflokkum |
|
Innviðaráðuneytið hefur ýtt úr vör vinnu við endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga 2019-2033 og Landsskipulagsstefnu 2015-2026 ásamt því að móta nýja húsnæðisstefnu. |
||
12. |
2201007 - Fundargerðir stjórnar SSNE árið 2022 |
|
37. og 38 fundargerð SSNE lagðar fram til kynningar. |
||
Almenn mál - umsagnir og vísanir |
||
4. |
2111010 - Frágangur á göngu- og hjólastíg |
|
Farið yfir tilboð í að leggja jöfnunarlag á göngu- og hjólastíginn í Vaðlareit. |
||
5. |
1806010 - Laun sveitarstjórnar |
|
Laun sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps 2022-2026 ákveðin. |
||
6. |
2011012 - Stytting vinnuvikunnar |
|
Mál sem var frestað á 93. fundi sveitarstjórnar. Vinnuhópur í Valsárskóla hefur unnið að tillögu vegna styttingu vinnuvikunnar hjá félagsmönnum FG. Niðurstöður vinnuhópsins lagðar fyrir sveitarstjórn. |
||
8. |
2111005 - Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs á Norðurlandi |
|
Í framhaldi af vinnu á "Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs á Norðurlandi 2015-2026" og þeirra breytinga sem verða 1. janúar 2023 má telja það mjög brýnt að endurskoðun fari fram á samþykktum um meðhöndlun úrgangs, endurskoðun á uppsetningu gjaldskráa og í mörgum tilvikum þarf að huga að gerð útboðsgagna fyrir útboð sorphirðu þjónustu. |
||
10. |
2206006 - Umsagnarbeiðni um rekstrarleyfi |
|
Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra óskar eftir umsögn sveitarstjórnar vegna leyfis til reksturs gististaðar í Flokk III-C, minna gistiheimili. |
||
11. |
2112004 - Tónlistarskóli Eyjafjarðar |
|
Kostnaðaráætlun Tónlistarskóla Eyjafjarðar veturinn 2022-23 lögð fram til samþykktar. |
||
Aðalmenn eru beðnir að láta vita af forföllum í tíma svo hægt sé að boða varamenn.
Svalbarðseyri 24.06.2022,
Gestur Jensson
Oddviti.
Svalbarðsstrandarhreppur - Ráðhúsinu, 606 Akureyri
Kennitala: 640269-2279 - Bankareikn.: 0162-26-075801