Þann 14. mars s.l. birtist auglýsing um gildistöku deiliskipulags fyrir Sunnnuhlíð í Svalbarðsstrandarhreppi í B-deild stjórnartíðinda.
Auglýsingin er svohljóðandi:
AUGLÝSING
um deiliskipulag Sunnuhlíðar í Svalbarðsstrandarhreppi
Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps hefur samþykkt deiliskipulag fyrir Sunnuhlíð í Svalbarðsstrandarhreppi. Deiliskipulagið var auglýst samkvæmt 1. mgr. 25. gr. laga nr. 73/1997 með athugasemdafresti til 31. desember 2010. Engar athugasemdir bárust.
Deiliskipulagssvæðið er um 7 ha að stærð og gert er ráð fyrir byggingu nýs 200 fm einbýlishúss til viðbótar við þau mannvirki sem fyrir eru á jörðinni. Deiliskipulagið tekur þegar gildi.
Svalbarðseyri, 24. febrúar 2011.
Jón Hrói Finnsson sveitarstjóri.
Svalbarðsstrandarhreppur - Ráðhúsinu, 606 Akureyri
Kennitala: 640269-2279 - Bankareikn.: 0162-26-075801