Gul viðvörun vegna veðurs

Veðurstofa Íslands varar við vestan hvassviðri eða stormi, 15-23m/s með éljum og hvössum vinstrengjum við fjöll á Norðurlandi eystra. Búast má við lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum á fjallvegum. Gert er ráð fyrir hvassri norðvestan- og vestanátt á þessu svæði í dag, mánudag, að það hvessi um landið austanvert næstu nótt og að hvassviðri eða stormur sé um austanvert landið á morgun, þriðjudag. Vonandi er búið að koma öllum trampólínum í geymslu fyrir veturinn en gott að minna íbúa á að festa lausamuni, trampólín, ruslatunnur eða annað sem vindurinn getur rifið með sér. Íbúum er bent á að fylgjast með veðurspá og hægt er að fylgjast með veðri á vedur.is. Fólk er hvatt til að huga að niðurföllum til að forðast vatnstjón og fylgjast vel með fréttum.