í næstu viku munu starfsmenn frá umhverfisverkfræðistofunni ReSource International gera lekaleit á hitaveitu fyrir hönd Norðurorku. Lekaleitin fer m.a. fram á Svalbarðseyri.
Lekaleitin verður gerð með drónum þar sem teknar verða hitamyndir úr +50 m hæð vegna mögulegra leka á hitaveitulögnum sem og til að varpa ljósi á mögulegar viðhaldsþarfir. Myndir eru teknar úr þónokkurri hæð svo ekki er hægt að greina neina persónugreinanlega hluti á þeim. Gögnin munu afhentast Norðurorku og ekki fara í dreifingu út á við.
ReSource International mun leitast eftir því að framkvæma verkið með öryggi og hag íbúa að leiðarljósi og þakkar fyrirfram sýndan skilning og þolinmæði.
Svalbarðsstrandarhreppur - Ráðhúsinu, 606 Akureyri
Kennitala: 640269-2279 - Bankareikn.: 0162-26-075801