Tveir nýir starfsmenn hafa hafið störf á skrifstofu Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar (SBE).
Jakobína Ósk Sveinsdóttir er nýr starfsmaður á skrifstofu embættisins og mun hún annast móttöku erinda, umsjón teikningasafns og kortasjár og koma að úrvinnslu mála. Jakobína er menntuð í landafræði og er með B.Sc. gráðu á því sviði frá H.Í. Jakobína er Eyfirðingur að uppruna og er upp alin á Vatnsenda í Eyjafjarðarsveit.
Sigríður Kristjánsdóttir hefur tekið við embætti skipulagsfulltrúa í aðildarsveitarfélögum SBE. Sigríður er með Ph.D gráðu í umhverfisvísindum frá Háskólanum í Birmingham í Bretlandi, meistaragráðu í skipulagsfræði frá Háskólanum í Washington, Seattle í Bandaríkjunum og B.Sc. gráðu í landfræði frá H.Í.. Sigríður hefur starfað við rannsóknir og kennslu á sviði skipulagsmála í um 25 ára skeið og hefur á þeim tíma haft samstarf við fjölda erlendra og innlendra háskóla. Sigríður hefur flutt erindi á fjölda ráðstefna um skipulagsmál , ritað fjölda ritrýndra greina og bókarkafla á sviði skipulagsmála og verið dómskvaddur matsmaður í dómamálum. Sigríður hefur auk þess haft forgöngu um uppbyggingu skipulagsfræðináms við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri og hefur um árabil veitt skipulagsfræðinámi við skólann forystu. Sigríður er Eyfirðingur að uppruna og er upp alin í Kaupangi í Eyjafjarðarsveit.
Jakobína og Sigríður eru kærkominn liðstyrkur fyrir Skipulags- og byggingarfulltrúa Eyjafjarðar og munu efla styrkja starfsemina til muna.
Svalbarðsstrandarhreppur - Ráðhúsinu, 606 Akureyri
Kennitala: 640269-2279 - Bankareikn.: 0162-26-075801