Svalbarðsstrandarhreppur óskar eftir að semja við byggingarverktaka

Svalbarðsstrandarhreppur óskar eftir að semja við byggingarverktaka til að annast hönnun og byggingu parhús Bakkatún 10, Svalbarðseyri.

Verkið fellst í hönnun og byggingu parhús með innbyggðri bílgeymslu, stærð í kringum 130 fermetrar hvor íbúð með bílskúr. Íbúðir skulu vera fjögurra herbergja. Verktaki ákveður form og uppbyggingu hússins, sem skal vera viðhaldslétt og af vandaðri gerð.

Verktakar sem hafa áhuga á að taka verkefnið að sér eru beðnir að leggja fram hugmyndir sínar á skrifstofu Svalbarðsstrandarhrepps eigi síðan en 30. júní 2020. Þær upplýsingar sem fram þurfa að koma eru m.a.:

  • Teikningar sem sýna form og stærð íbúða
  • Greinargóð lýsing íbúða
  • Áætlaður byggingarkostnaður
  • Áætlaður byggingartími
  • Vísun í fyrri verk verktaka
  • Upplýsingar um hönnuði.

Nánari upplýsinga má finna á heimasíðu og skrifstofu sveitarfélagsins, www.svalbardsstrond.is og sími: 464 5500.

Tilboðum skal skilað á skrifstofu Svalbarðsstrandarhrepps, Svalbarðseyri fyrir kl. 11:00 þann 30. júní 2020. Sveitastjórn, ásamt óháðum fagaðila, mun í framhaldinu meta innkomin tilboð og útfærslur.

Verkkaupi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.

Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps