Tilkynning frá Svalbarðsstrandarhreppi vegna forsetakosninga 2020

Frá 16. júní til og með 26. júní liggur kjörskrá vegna forsetakosninganna frammi á skrifstofu Svalbarðsstrandarhrepps, Ráðhúsinu. Opnunartími skrifstofu er alla virka daga frá kl. 10:00-12:00 og 13:00 – 15:00.

Kjörfundur verður laugardaginn 27. júní 2020 og hefst klukkan 10:00. Kosið verður í Valsárskóla (gengið inn að sunnan).

Stefnt er að lokum kjörfundar kl. 18:00 en tekið skal fram að ekki má loka kjörstað fyrir klukkan 22:00 nema kjörfundur hafi staðið í átta tíma og hálftími sé liðinn frá því að kjósandi gaf sig síðast fram.

Kjósendur eru því hvattir til að mæta nægilega snemma til að tryggja að þeir geti greitt atkvæði. Ennfremur eru kjósendur beðnir að hafa skilríki meðferðis.

Nánari upplýsingar um forsetakosningarnar er að finna á http://kosning.is