Sumarsirkus Húlladúllunnar á Svalbarðsströnd
02.06.2021
Húlladúllan verður með sumarsirkus námskeið á svalbarðsströnd fyrir 6 ára og eldri. Endilega skráðu þig sem fyrst og tryggðu þér pláss.
Áhersla er lögð á sköpunargleði, samvinnu og það að þáttakendur uppgötvi og njóti eigin styrkleika. Sirkuslistirnar styrkja líkamlega getu, jafnvægi og liðleika en þroska líka einbeitingu, styrkja sjálfsmynd og kveikja í ímyndunarafli og sköpunargleði.